forsidumyndir

 


25. júní 2009

Vegna gífurlegrar eftirspurnar hefur Breiðafjarðarnefnd nú látið endurprenta kynningarbæklingana Fuglalíf á Breiðafirði og Breiðafjörður - Náttúra og saga. Þeir sem hafa áhuga á að fá bæklingana senda, hvort sem er til dreifingar eða til einkanota, er bent á að hafa samband við ritara nefndarinnar breidafjordur@nsv.is eða fylla út form til þess hér á síðunni.

Útfyllingarform fyrir Fuglalíf á Breiðafirði
http://breidafjordur.is/Utgafa/fuglalifsbaeklingur/index.htm

Útfillingarform fyrir Breiðafjörður - Náttúra og saga:
http://www.breidafjordur.is/Utgafa/Baeklingar/index.htm

23. febrúar 2009

Starfsskýrsla Breiðafjarðarnefndar 2008

Breiðafjarðarnefnd hefur gefið út starfsskýrslu fyrir árið 2008. Skýrsluna er hægt að skoða hér.

 

8. desember 2008

5. desember sl. hélt Breiðafjarðarnefnd síðasta fund ársins 2008. Friðjóni Þórðarsyni, fyrrverandi formanni nefndarinnar (1996-2008), var sérstaklega boðið að koma á fundinn og voru honum þökkuð störf í þágu nefndarinnar. Öðrum fyrrverandi nefndarmönnum var einnig boðið á fundinn. Nefndarmönnum og gestum gafst tækifæri á að skoða sýninguna í Leifsbúð.

formanni afhent blóm brfn brfn og gestir

 

23. júlí 2008

Þann 17. júlí sl. var skipað í Breiðafjarðarnefnd til næstu fjögurra ára. Í nefndinni sitja:

Formaður skipaður án tilnefningar
Kolbrún Reynisdóttir, formaður
Guðríður Þorvarðardóttir, varaformaður

Samkvæmt tilnefningu Fornleifaverndar ríkisins
Magnús A. Sigurðsson
Agnes Stefánsdóttir varamaður

Samkvæmt sameiginlegri tilnefningu Náttúrufræðistofnunar Íslands, Náttúrustofu Vesturlands og Náttúrustofu Vestfjarða
Þorleifur Eiríksson
Róbert Arnar Stefánsson varamaður

Samkvæmt tilnefningu Héraðsnefndar Snæfellinga
Ásgeir Gunnar Jónsson
Trausti Tryggvason varamaður

Samkvæmt tilnefningu Reykhólahrepps f.h. Héraðsnefndar A-Barðastrandarsýslu
Eiríkur Snæbjörnsson
Jóhannes Geir Gíslason varamaður

Samkvæmt tilnefningu Dalabyggðar, f.h. Héraðsnefndar Dalasýslu
Sigurður Þórólfsson
Halla S. Steinólfsdóttir varamaður

Samkvæmt tilnefningu Vesturbyggðar f.h. Héraðsnefndar Vestur-Barðastrandasýslu
Þórólfur Halldórsson
Úlfar B. Thoroddsen varamaður

 

15. júlí 2008

Nýlega beitti Breiðafjarðarnefnd sér fyrir því að gerð var skýrsla um æskilegar áherslur í rannsóknum og vöktun á lífríki Breiðafjarðar, sbr. 7. gr. laga um vernd Breiðafjarðar. Skýrslan var afrakstur fundar 24 sérfræðinga um lífríki sjávar í Breiðafirði. Í skýrslunni kemur m.a. fram að þekkingu er víða mjög ábótavant. Til að mynda skortir mikið á kortlagningu og skráningu á grundvallar upplýsingum um náttúru svæðisins, auk þess sem innbyrðis tengsl lífvera og flæði kolefnis um vistkerfið er mjög lítið eða ekkert þekkt.
Skýrsluna má sækja í heild sinni með því að smella hér.

forsida

 

10. júlí 2008

Breiðafjarðarnefnd hélt í gær í vettvangsferð um Breiðafjörð, Hvallátur og Svefneyjar.  Lagt var af stað frá Stykkishólmi og Stað og haldið í Flatey.  Þaðan var siglt á tveimur bátum inn með þorpinu til Svefneyja, þar sem Gissur Tryggvason, Ragnheiður Axelsdóttir og Vera Antonsdóttir tóku á móti hópnum og sáu um kynningu á eyjunni, nytjum og örnefnum. Nefndarmenn skoðuðu húsakosti og þáðu veitingar.  Ranakofinn vakti sérstaklega áhuga nefndarmanna og gesta, en hann nýtur friðunar skv. lögum um húsafriðun nr. 104/2001.
Frá Svefneyjum var haldið í Hvallátur og gengið þar í land.  Þar tóku þau Erla Friðriksdóttir og Guðmundur Björnsson á móti hópnum og sýndu m.a. seglskipið Egil, sem Aðasteinn Aðalsteinsson hefur verið að gera upp. Ólafur Bergsveinsson í  Hvallátrum smíðaði Egil, sem var teinæringur og stærsta skip sem hann smíðaði og var stærsta opna skipið í Breiðafirði um sína daga. Ólafur var mikill skipasmiður og smíðaði milli 60 og 70 skip. Þá var æðarungaeldið skoðað ásamt aðstöðu til hreinsunar æðardúns. 
Frá Hvallátrum var haldið aftur í Flatey en á leiðinni var rennt upp að eyjunum Höfninni (Hafnarey), Hrólfskletti og Flateyjar-Klofningi.  Í Flatey var gengið um eyjuna með leiðsögumanni Sæferða, Sveinbirni Pálssyni og kvöldverður snæddur í Hótel Flatey. 

Myndir úr ferðinni má skoða með því að smella hér.

 

8. apríl 2008

Starfsskýrsla Breiðafjarðarnefndar 2007

Breiðafjarðarnefnd hefur gefið út starfsskýrslu fyrir árið 2007. Skýrsluna er hægt að skoða hér.



11. september 2007

Rannsókna- og vöktunaráætlun fyrir Breiðafjörð

Á morgun, 12. september, hefst á Hótel Stykkishólmi tveggja daga vinnufundur 26 sérfræðinga um lífríki Breiðafjarðar. Viðfangsefni fundarins er að fjalla um lykilþætti í lífríkinu og útbúa rannsókna- og vöktunaráætlun fyrir svæðið.

Breiðafjarðarnefnd hafði frumkvæði að þessari vinnu með því að óska eftir því við náttúrustofurnar á Vesturlandi og Vestfjörðum og Náttúrufræðistofnun Íslands að þær gerðu slíka áætlun. Stofnanirnar lögðu til að haldinn yrði sérfræðingafundur og þangað boðið öllum helstu sérfræðingum landsins um lífríki svæðisins ásamt öðrum sem taldir væru geta lagt málinu lið. Fulltrúar ofangreindra stofnana, Háskólaseturs Snæfellsness og Sjávarrannsóknasetursins Varar mynduðu undirbúningshóp síðastliðið vor, sem unnið hefur að undirbúningi fundarins. Þar munu mæta fulltrúar flestra náttúrurannsóknastofnana landsins.

Nú er allt klárt fyrir morgundaginn og er vonast eftir árangursríkum fundi næstu tvo dagana. Þess er vænst að gerð áætlunarinnar verði til þess að rannsóknir á lífríki svæðisins verði auknar, svo öðlast megi betri skilning á stöðu mála og þeim breytingum sem virðast vera hafnar.


16. júlí 2007

Komin er út skýrsla um Örnefni í sjó á Breiðafirði. Eins og fram kemur í formála skýrslunnar greinir hún frá niðurstöðum um skráningu og staðsetningu örnefna sem fór fram sumarið 2006.
Gerður var samstarfssamningur milli Breiðafjarðarnefndar og Raunvísindastofnunar Háskólans um að stofnunin tæki að sér að skrá og staðsetja örnefni á Breiðafirði að undanskildum nöfnum á eyjum og skerjum. Skýrslan er unnin af Guðrúnu Gísladótur prófessor í land- og ferðamálaskor og Jarðvísindastofnun Háskólans, sem var verkefnisstjóri og Hjördísi Lindu Jónsdóttur landfræðinema, sem var ráðin til að safna og staðsetja örnefni sumarið 2006 og flytja þau í gagnagrunn landfræðilegra upplýsingakerfa. Breiðafjarðarnefnd kostaði verkið að mestu.

Skýrsluna Örnefni í sjó á Breiðafirði má nálgast hér!


13. apríl 2007

Nú hefur Breiðafjarðarnefnd látið endurprenta áður útgefna kynningarbæklinga um fuglalíf á Breiðafirði og náttúru og sögu Breiðafjarðar. Þeir aðilar sem hafa áhuga á að dreifa bæklingnum er bent á að hafa samband við ritara Breiðafjarðarnefndar í póstfangið breidafjordur@nsv.is eða hafa samband í síma 433-8121. 


19. mars 2007

Breiðafjarðarnefnd hefur gefið út starfsskýrslu fyrir árið 2006. Skýrsluna er hægt að skoða hér.


20. febrúar 2006

Komin er út starfsskýrsla Breiðafjarðarnefndar fyrir árið 2005.  Skýrslan var afhent umhverfisráðherra í dag, en hana er einnig hægt að nálgast hér .

 

15. desember 2005

Breiðafjarðarnefnd hefur látið vinna Stöðuskýrslu um náttúrufarsrannsóknir á Breiðafirði.  Skýrslan er samin af Gunnari Þór Hallgrímssyni og Ævari Petersen skv. samningi við Náttúrufræðistofnun Íslands.  Skýrsluna er hægt að sækja hér.

 

25. ágúst 2004

Nú í sumar stóð Breiðafjarðarnefnd að útgáfu á kynningarbæklingi um Breiðafjörð sem ber heitið " Breiðafjörður - Náttúra og saga" .  Bæklingurinn var sendur inn á hvert heimili sveitarfélaganna átta við Breiðafjörð og til helstu aðila í ferðaþjónustu á svæðinu.   Hægt er að skoða bæklinginn og panta hér .  Einnig er hægt að skoða kortið úr bæklingnum undir linknum " Verndarsvæðið " hér til hliðar.

 

12. júlí 2004

Þann 6. júlí sl. skipaði umhverfisráðherra í nýja Breiðafjarðarnefnd, en skipað er í nefndina til fjögurra ára í senn.  Nánari upplýsingar um það hverjir sitja í nefndinni næstu fjögur árin má finna hér.

 

17. febrúar 2004

Þann 15. september 2003 var undirritaður samstarfssamningur milli Breiðafjarðarnefndar og Fornleifaverndar ríkisins varðandi skráningu heimilda um menningarminjar á jörðum á verndarsvæði Breiðafjarðar.  Í  kjölfarið var Benedikt Eyþórsson, nemi í sagnfræði við Háskóla Íslands, ráðinn til að safna saman heimildunum og hefur hann nú skilað Breiðafjarðarnefnd heimildaskrá, sem hann kallar B reiðafjarðarbyggðir – Útgefnar heimildir um jarðir, ábúendur, búnaðarhætti og fleira sem tengist sögu Breiðafjarðarsvæðisins”. 

Eins og Benedikt bendir sjálfur á í inngangi má halda endalaust áfram við heimildaleit og skráningu og er það því ósk nefndarinnar að þeir sem þekkja heimildir sem ekki eru í skránni láti ritara nefndarinnar vita af þeim svo stöðugt megi uppfæra skrána.   Heimildaskrána er hægt að sækja hér.

 

_________________________________________________________________________________________________________________________
Breiðafjarðarnefnd,  Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, s. 433-8121, fax 438-1705, veffang: www.breidafjordur.is -  netfang: breidafjordur@nsv.is