Á miðslæðinu:
Tungubær
Lögn fyrir framan Höfða. Tungubær yfir Mávahlíðarhellu og tekið til eftir Stekkjasteini undan sætrum að austanverðu og lagt austur undan Tungubæ. 6 færi.
Gvendar Jó-mid
Langt er út í lúðumið.
Lá þar falinn bátur.
Tryssukot í Laugu-Lág
Og Laxa-Jón í Látur.
Katlaklettur
Eftir Borgargili (fyrir ofan Fögruhlíð) og Lambahnúkskollurinn fyrir ofan fellsröndina: Fiskilóð lögð 5 línur fram, en haukalóð í landið.
Fellsbrotið (vestara)
Stagfellið við Höfðabrún og eftir vestur jöðrum á Felli og Stöð: (Lúðumið) Lagt laust Stagfellið og í landið eftir vesturjöðrum yfir Stagfellið.
Vesturjaðrar á Syðramiði
Tekið til á Hafnarbroddum og lagt í landið eftir vesturjöðrum. (Lúðumið)
Korri
Korri í Höfðastalli og eftir vesturjöðrum á Felli og Stöð. (Lúðu og fiskimið lagt fram)
Legumið á Syðramiði
Eftir Grunnhamri og þegar fellið er gengið undir Stöðina, en vantar aðeins í austurjaðar á Felli. Fiski og Haukalóð lagðar fram.
Höfn og Holusteinn
Eftir Höfn og Holusteini og lagt fram. (Lúðumið)
Ómars-Háfur
Eftir Holusteini, tekið til á strák á Þúfu lagt fram. (Lúðumið)
Grunn-Holuhraun
Tekið til þegar grynnir upp úr Holu á 100m. og lagt í landið eftir holudyrum rétt opnum.
Hola
Eftir Holudyrum og Girðinginn í Skollavíkursnaga.
Holuhraun
Fyrir austan Holu alveg fram að brún, tekið til þegar dýpkar aftur suður þegar Hádegishnúkur er fastur við Stöð. (látið hylla í hnúkinn á austurfalli, en hafður laus á vesturfalli) lagt í landið.
Búðabær
Bjargnefið í gömlu Búðatóftirnar. Tekið til á Hafnarbroddum og lagt í landið. (Einnig má taka til á blindum Broddum og leggja í fram.) Lúðumið.
Búðabær í skarði
Eftir Búðabæ og strákum í miðju skarði. Lagt fram.
Bjarnamið
Dyrabrún opin og Bjarnamiðshnúfur bera í Höfðastall. Lagt fram eftir Hnausatám undan Bjargi.
Grynnra af Bjarnamiði
Tekið til með strák í miðju skarði og lagt fram eftir Hnausatám 6-7
Austara Fellsbrot
Hnausatærnar í Krossnesbjargið og lagt yfir Stagfellið við Höfðabrún. Einnig má leggja yfir Stagfellið í stefnu Stöng í Grjótá. (Lúðu og fiskilögn.)
Leirinn
Austari Eyjarendinn í skriðu fyrir sunnan Grundarhúsið og eftir Skipsþúfu. Lagt fram 3 línur fiskimið.
Hraunaklettur
Eftir stöng í Grjótá, tekið til á Strák í þúfu og lagt fram 5 færi. (Lúðumið)
Austara Korrabrot
Korri í suðurenda á Höfðakúlu og eftir austur Eyjarenda í Grjótá. Lagt fram 5-6 f. Haukalóð.
Skarðsklettur
Hádegishnúkur í austurjaðar á Stöð og Strákur í miðju skarði. (Lúðu og fiskimið) lagt fram 5 færi.
Litli Klettur
Eftir Hádegishnúk í Fellsrönd og eftir Hæstuhnúfu á Bjarnarhafnarfjalli. (Fiski og lúðumið)
Háfur eftir Hnúk
Háfur undan Eyrarfjalli og Hnúkurinn í Fellsrönd að vestanverðu. Lagt fram. (Lúðumið)
Vestara Háfahnúksbrot
Eftir Háf og Stöng í Grjótá. Lagt fram 5f tekið til á Háf blindum (Lúðumið).
Austara Háfahnúksbrot
Eftir Háf og austara Eyjarenda í Grjótá. Tekið til með Háf blindan og lagt fram (Lúðumið).
Steindórsflaga
Eftir Háf og Stöng í Grundarfoss. Lagt í landið. Lúðumið.
Í Hnúknum
Vallarhnúkur undan Höfðanum og háeyjan í Grundarfjarðarkirkju eða fellin. Tekið til á Hnúk blindum og lagt fram 5-6 f. (Þari)
Í brúninni
Hrísaklettur
Hrísakletturinn ber í efri bæinn á Hrísum, og Háskerðingur við brekkurnar fyrir ofan Vatnabúðir. (Lúðu og fiskimið).
Auga
Austur úr Hrísakletti. Hrísaklettur ber í neðri Hrísar og Kirkjufell í hök á Stöð. (Fiskimið).
Borgin
Borgin er í Holtsánni fyrir ofan Fögruhlíð og kemur í brúnina á Búlandshöfða, og Hafnarbroddar undan Eyrarfjalli. Haukalóð lögð í landið og fiskislóð fram í álinn.
Gauksmýrarklettur
Fram eftir vesturjöðrum. Tekið til á skipsþúfu og lagt fram yfir sextugt og þar er kletturinn sjálfur. (Fiskimið)
Ásbjarnarmið
Eftir Ófærugili við vestur horn á Stöð og Eyrarstrák í öxlina á Bjarnarhafnarfjalli. Eða eftir Girðing fyrir ofan Bugsmúla, eða Krossnesbæinn við Múlahornið og Holtsbæinn við Mávahlíðarhelluna. Krossaskaflinn er aðeins vestan við gilið í Ásbjarnamiðinu. (Fiski og lúðumið). Haukalóð lögð í landið eftir Gilinu.
Mávsbrún
Mávsbrúnin nær frá Ásbjarnarmiði að Snaga í Holu. Á þessum snaga eru Holudyr aðeins byrjaðar að opnast. Mávsbrúnin er þverhnýpt bjarg.
Hola
Eftir Holudyrum og Girðingin í Skollavíkursnaga.
Djúpiklettur
Girðingin ferskeitt (fram úr Vallarbjargi) og eftir Holusteini eða Fellsrönd í Ófærugil.
Tangi
Hnausavitinn í Bjargtána og Setbergskirkja í austurhorn á eyjunni.
Dyrabrún
Eftir opnum Dyrabrúnadyrum og frram í brún.
Díli
Rönd á Mýrarhyrnu við staðarnef og Dílakúla aðeins undan.
Böðvarsgil
Böðvarsgilið við vesturendann á Stöð, og fram í brún.
Vesturrönd
Austurrönd á Mýrarhyrnu og austurrönd á Stöð liggja saman.
Bekrablettur
Er á milli Randa. Ljósgrænn hvannarblettur í Mýrarhyrnu,
Austurrönd
Vesturrönd á Mýrarhyrnu og austurrönd á Stöð liggja saman.
Boðar:
Þrælaboði
Holtsbærinn við Mávahlíðarhelluna og Höfðakotsbærinn við sætruna.
Vallarbæjarboði
Vallabærinn við sætrin og Víkurbærinn við endann á háu bökkunum í Vík (við Hópið).
Mávahnúksboðinn
Mávahnúkurinn í Staðarnefið að vestan og hnakki á Háskerðingi við brekkuendann.
Hempill
Eyrarhyrna í Vestur-Gjafa og Helgafell í skarðið á Háskerðing. (Lúðulögn lögð lausan Gjafa 4-6f).
Bolli
Naustálsbær og Bárartröð
bendast á við skolla.
Lítið stykki af Lágu Stöð.
Er leiðin fyrir Bolla.
Á Lágu-Stöð í vestur eyjarendann er Bolli sjálfur. |
Í Sundinu og við eyjuna:
Melrakkaey
Lúðulögn. Tekið til við eyjarhornið þegar suður eyjarendinn er í Búðabæinn og lagt austur og fram.
Fiskimið. Bærinn í norður Bár í suður-eyjarendann og fellakollur við Hnausa.
Fiskimið. Skriðan í Fellinu í Bjargið og Arnarhóll í Brimbrekkuna á eynni.
Fiskimið. Arnarhóll í norður eyjarendann og Búðarholtið við Bjargið.
Fiskimið. Gilfossinn í Suður-Eyjarendann og skriðu í Felli í Bjarg.
Álaþúfa
Álaþúfan í Stöð og Arnarhóll í suður eyjarendann.
Í Vikinu
Stórhóll (í Lárdal) í suður eyjarendann og eftir skipsþúfu. Lagt á Vatnabúðir. (Haukalóð).
Jakobsblettur
Smá hola 17 fm. Framan við eyjarrifið eftir grænum bletti norðan í Klakknum sem ber í Byrgið (norður enda.)
Gunnu Björns-mið
Stóru urðir í Mýrarhyrnu við Helluna og Skarðsklettur við Kirkjufellið. (Fastur við á liggjanda 62-68 fm). Smá hóll lagt annaðhvort í suður eða norður til að hitta á hólinn.
Lágahnúksflaga
Eftir Lágahnúk (Vallarhnúk) við höfðabrún og Mírarhúsahjalla í hellutá. (Lúðumið).
Krossnesflaga
Eftir Krossneshúsinu gamla vestan við bjargið og hólana á eynni í Þórdísstaðabæinn. (Lúðumið).
Eftir Randarsteini í Sandvík
Tekið til á ennishömrunum og lagt eftir steininum í fellsrönd (steinninn er á múlanum). Lúðumið.
Eftir Oddunum
Höfðakúla vestan við stöðina, tekið til vestan til við Eyjuna og lagt á Spjör.
Austurmið
Hersgrunn
Korrahornið við Álaþúfu og lagt eftir múlanum. 6-8 f.
Fjallabrot
Helgafell í stalli á Háskerðingi og stóra Berserk undan Eyrarfjalli. (Með vesturfalli lagt á Vatnabúðir).
Hermannsgjafi
Er á milli Hempils og Selskers. Guðmundur Guðmundsson eldri fékk oft stórlúðu austan við Hempil. (Hempill: Eyrarhyrna í Vestur-Gjafa og Helgafell í skarðið á Háskerðing. Lagt lausan Gjafa 4-6f).
Við Kópaflögur
Boði fyrir suðvestan Flögurnar (mjótt sund) Suður-mið. Hrafnfoss við Eyrarhyrnuna, aðeins undan. (Lagt með boðanum að vestri 4-6f. Dýpi ca. 10-15fm).
Fellnaklettur
(Lúðumið) ASA af Sigmundarbrún. Hafrafellstindar undan Bjarnarhafnarfjalli og (Elliðaey í Flekkudal) lagt undan tindunum. Selsker í Hnausana.
Breddi
Hyrna í Leiðarhnúk og Helgafell í tvö skörð á Háskerðing.
Múlalá
Eyrarhyrna í Múlalá í Kolgrafamúla í landið.
?
Höskuldsey í Háskerðing og Selsker í Búðabæ og lagt undan Búðabæ.
Hnakkabrot
Helgafell samjaðra Háskerðing og Hnakki við Eyrarfjall og lagt í landið á Naustál.
Sigmundarbrún
(Fiskimið) Eyrarhyrna í vestari Gjafa og Helgafell í Höskuldsey (selsker í Mön).
Suður af Felladýpinu
Austurbrún á Stöð og Vesturrönd á Hyrnu og Sandhólskollurinn undan Bjarnarhafnarfjalli. Lagt á Stöð.
Hafrafellsbrún
(Suðurmið) Eyrarhyrna í Leiðarhnúk og Selsker í Bugsmúla. (Þá áttu að vera í brúninni, en síðan má keyra eftir því austur á Hafrafellstinda).
Stjóralega
Litli Berserkur vestan við Bjarnarhafnarfjall og Korri í Stól. (Lúðumið lagt í landið á Berserk). (Fiskimið eftir stóra Berserk og lagt fram í álinn).
Heimsendaflaga
Eftir Þorsteinskeyp og Mávahnúkskolli: Tekið til á 40fm. og lagt fram.
Kúlubrot
Röndin aðeins laus og fyrsta kúla undan Bjarnarhafnarfjalli og Grundarfossinn í Birgið á eynni. Þá er farið yfir Steindórsflugu og fram í Kúlubrotsálinn.
Brekinn
Helgafell í Háskerðing og Hornið undan (vestast?). Sandarnir undan.
Steinbogi
Steinbogi við Eyrarfjall og Helgafell á Háfjallinum (Háskerðing). Lagt fram og lausan Hornskoll og Steinbogi gengur undir.
Gunnlaugsmið
Kistufell uppi á Stöð og tekið til lausan Hornskollinn og Steinbogi gengur undir, stefna á sker.
Slóðin
Selsker í Grundarmön og Helgafell í Akureyjar 30-40fm. Þar er állinn 60fm.
Hempill
Helgafell í Háskerðing, Hirnukollur í Múlalág.
Hafrafellsbrún
Selsker í Bugsmúla (ferskeitt stikki framundan Selskeri), Hafrafellstindar framundan Bjarnarhafnarfjalli.
Tindabrún
Eyrarhyrna í Leiðarhnúk, Höskuldsey í Kárafell.
Pálsflaga
Oddbjarnarsker í Helgafell, Hnakki í syðri rönd Bjarnarhafnarfjalls. Bælisklettar í Borg á Klakk. Lagt fram á Selsker. (Lúðumið)
Flekksflaga
Heldur dýpra af flekknum sem er Akureyjarhausinn í flekkinn á Drápuhlíðarfjalli, Hirnukollurinn í Stóragjafa.
Í Álnum
Böðvarsgil
Eftir Matarfelli og Nasa.
Á Horninu
Austurrendur á Stöð og Hyrnu og Hornið við Suðurenda á Bjarnarhafnarfjalli. Lagt fram annað hvort eftir rönd eða horni.
Holusteinn
Eftir Matarfelli og Nasa. Byrjað á 80-90 fm og 3-4 bjóð lögð fram.
Þokumið
(El Dorado) Eftir Holudyrum og neðra haki í Matarfelli í Nasabrún.
Hóllinn
(á Nefjum) Hafrafell fram úr Eyrarfjalli og Mávahnúkur fast upp á Stöð. Rönd af Matarfelli fram úr Nasa. (fyrir austan alla hryggi).
Gísla-mið
Hornið eftir röndinni (Berserkur) undan fram af litla hrygg 60fm. Endinn á Bekrabletti í Stöðina á Austurfall og lagt í landið.
Eftir Dyrabrún
Eftir rétt opnum dyrum á Dyrabrún og eftir Djúphnúfu á Matarfelli (Búrfelli) við Nasa (Hreggnasa). Lagt fram yfir hrygginn og niður.
Eftir Háf og Holusteini
Tekið til á fullu dýpi og lagt fram.
Tekið er til með Háf blindan undir Eyrarfjalli og lagt fram. (Háfurinn kemur undan). Lagt eftir Holusteini, sem er steinn austan í Stöð sem ber í vesturjaðar á Kirkjufelli. þá eru holudyr lokaðar.
Árnaflaga
Austur og dýpra af Bárðargrunni. Vesturjaðar á Felli ber í þrjár hnúfur á Stöð og Strákur í fremri öxl á Bjarnarhafnarfjalli. (Fiski og lúðumið).
Árnaflaga
Tekið til á Skarðsöxl og Valafell við hnúfurnar. Lagt fram eftir Valafellinu. (Lögnin lendir austan við háflögu).
Dýpra af Árnaflögu
Lagt eftir hakinu í Stöð. Tekið til þegar byrjar að grynnka aftur á næsta hrygg fram úr Árnaflögu. (Lagt í austurfalls-upptöku).
Bárðargrunn
Dýpra af Hrísakletti eftir Hrísakletti í efri Hrísar og Skipsþúfu á Bjarnarhafnarfjalli undan Eyrarfjalli.
Vestan við Árnaflögu
Hrói (djúp-Hrói) blindur. Vestur undir 6 mílum. Beint fram úr Árnaflögu upp á hrygg á 70 fm. Þá er Hrói orðinn laus sunnan við Ennið. |