forsidumyndir

 

_______________________________________________________________________________

Friðlýst svæði| Greinar og fyrirlestrar | Heimildaskrá | Rannsóknir| Tenglar| Örnefni | Fiskimið
_______________________________________________________________________________

Þann 15. september 2003 var undirritaður samstarfssamningur milli Breiðafjarðarnefndar og Fornleifaverndar ríkisins varðandi skráningu heimilda um menningarminjar á jörðum á verndarsvæði Breiðafjarðar.  Í  kjölfarið var Benedikt Eyþórsson, nemi í sagnfræði við Háskóla Íslands, ráðinn til að safna saman heimildunum og hefur hann nú skilað Breiðafjarðarnefnd heimildaskrá, sem hann kallar “ B reiðafjarðarbyggðir – Útgefnar heimildir um jarðir, ábúendur, búnaðarhætti og fleira sem tengist sögu Breiðafjarðarsvæðisins”. 

Eins og Benedikt bendir sjálfur á í inngangi má halda endalaust áfram við heimildaleit og skráningu og er það því ósk nefndarinnar að þeir sem þekkja heimildir sem ekki eru í skránni láti ritara nefndarinnar vita af þeim svo stöðugt megi uppfæra skrána.   Heimildaskrána er hægt að sækja hér.

 

_________________________________________________________________________________________________________________________
Breiðafjarðarnefnd,  Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, s. 433-8121, fax 438-1705, veffang: www.breidafjordur.is -  netfang: breidafjordur@nsv.is