![]() |
|
|---|---|
![]() |
![]() |
|
|
___________________________________________________________________________________ Listi yfir starfsemi/rannsóknir sem Breiðafjarðarnefnd hefur fengið Breiðafjarðarnefnd hefur sent erindi til ýmissa stofnana og óskað eftir upplýsingum um rannsóknir og/eða starfsemi á þeirra vegum, á verndarsvæði Breiðafjarðar um þessar mundir (febrúar 2009). Hér á eftir er yfirlit yfir starfsemi/rannsóknir sem nefndin hefur fengið upplýsingar um: Flýtihnappar á svarbréfin:
Svar Félags- og mannvísindadeildar Háskóla Íslands: Óskað var eftir"upplýsingum um verkefni sem hafa verið unnin og tengjast Breiðafirðinum. Þar sem verkefni eru hvergi greind sérstaklega eftir því hvaða landsvæði rannsóknir þeirra tengjast þá er ekki hægt að veita þessa upplýsingar. Enginn aðili hefur yfirsýn yfir slíkt. Hins vegar viljum við benda nefndinni á www.gegnir.is, en þar má m.a. leita eftir leitarorðum í fyrirsögnum og efnisorðum allra lokaritgerða sem skrifaðar hafa verið við Háskóla Íslands, gamla Kennaraháskólann og fleiri háskóla. Ég reikna með að nefndin vita betur en við hvaða leitarorð eigi við og ætti því að geta fundið greinargóðar upplýsingar með þessu móti. Þá bendum við jafnframt á að auk þess sem þær er að finna í Gegni þá er einnig sérstök skrá yfir lokaritgerðir í þjóðfræði á heimasíðu Félags þjóðfræðinga á Íslandi: Loks getum við nefnt að á þessu misseri er Þórunn Kjartansdóttir þjóðfræðinemi að rita BA-ritgerð um Skáleyjar á Breiðafirði og Jón Þór Pétursson, meistaranemi í þjóðfræði, er að rita MA-ritgerð um matarmenningu á Vesturlandi með áherslu á matarkistuna Breiðafjörð." Svar Hafrannsóknastofnunarinnar "Samantekt: Nýlegar rannsóknir Hafrannsóknastofnunarinnar í Breiðafirði Samfelldar hitamœlingar við strendur Íslands Vistfrœðirannsóknir í Breiðafirði Eiturþörungavöktun Rækjurannsóknir Hörpudiskrannsóknir Árstíðabundnar breytingar á þyngd líffœra hörpudisks Staðbundinn smáþorskur í Breiðafirði Rannsóknir á fœðu fiska Stofnstœrð síldar Rannsóknir á sýkingu Icthyophonus í síld Stofnstœrðarrannsóknir ýmissa nytjafiska Stofnmœlingar botnfiska Stofnmæling botnfiska að haustlagi Stofnmœling hrygningaþorsks með þorskanetum Hvalatalning úr flugvél Krœklingsrannsóknir
Hér fyrir neðan má nálgast skýrsluna: Bottom Trawling and
Scallop Dredging in the
Arctic
Impacts of fishing on non-target species, vulnerable
habitats and cultural heritage. Höfundar: Elena Guijarro Garcia (ed.), Stefán A. Ragnarsson,
Sigmar A. Steingrímsson, Dag Nævestad, Haukur Þ. Haraldsson,
Jan H. Fosså, Ole S. Tendal og Hrafnkell Eiríksson í samtstarfi við
Unni Skúladóttur, Rikke Frandsen og Helle Siegstad.
Húsafriðunarnefnd getur þess "að sérfræðingar stofnunarinnar hafa veitt ráðgjöf af ýmsu tagi vegna viðhalds og endurbóta fjölmargra húsa við Breiðafjörð. Ýmist eru hús þessi friðuð samkvæmt 4. eða 6. gr. laga um húsafriðun nr. 104/2001 og/eða veittur hefur verið styrkur til þeirra samkvæmt 17. gr. sömu laga. Þegar slíkur styrkur er veittur fylgjast sérfræðingar stofnunarinnar með því að þær framkvæmdir sem hún styrkir séu viðunandi af hendi leystar og í samræmi við leiðbeiningar sem stofnunin hefur gefið út. Það sama á við sé styrkurinn veittur af Fjárlaganefiid Alþingis. Friðuð hús við Breiðafjörð: Snóksdalskirkja, Skógarströnd.
(Athugasemd Breiðafjarðarnefndar: Snóksdalskirkja er í Miðdalshreppi) Byggð 1875.
Friðuð 1.janúar 1990 samkvæmt alidursákvæði l.mgr. 36. gr. þjóðminjalaga nr. 88/1989. Grímshjallur, Brokey.
Friðaður 1. janúar 1990 samkvæmt aldursákvæði 1. mgr. 36. gr. þjóðminjalaga nr. 88/1989. Dæmi um hús sem styrkt hafa verið á síðustu árum:
" Landmælingar íslands vinna að því í samstarfi við Umhverfisstofhun og Landhelgisgæsluna
Þann 26. júní 2002 sendi Náttúrustofa Vesturlands Breiðafjarðarnefnd upplýsingar um þær rannsóknir sem þá voru stundaðar á svæðinu af NSV. "Síðan þá hefur starfsemi NSV eflst og nokkrar rannsóknir farið að einhverju leyti fram á verndarsvæðinu. Þessar eru helstar:
Náttúrufræðistofnun Íslands (Kristinn Haukur Skarphéðinsson) hefur umsjón með vöktun arnarstofnsins. Undanfarin ár hefur Náttúrustofa Vesturlands tekið virkan þátt í þeirri vöktun, einkum með því að heimsækja arnarhreiður við sunnanverðan Breiðafjörð til sýnatöku og að merkja unga. Sömuleiðis hefur fúleggjum verið safnað til mælinga á þrávirkum, lífrænum mengunarefnum. Niðurstöður þeirra hafa verið kynntar á nokkrum ráðstefnum og má skoða veggspjald um fyrstu niðurstöðurnar á heimasíðu NSV (veggspjald á http://www.nsv.is/veggspjold/Orn_thravirk_lifraen_efni.pdf og útdráttur þess á http://www.nsv.is/mengurnarefni_haforn.pdf). Frá því árið 2001 hafa verið tekin blóðsýni úr arnarungum en þessi sýni verða notuð til erfðarannsókna á stofninum og áhrifum skyldleika arnarhjóna á varpárangur þeirra.
Rannsóknir á minkum hafa verið kjölfestuverkefni NSV undanfarin ár. Hefur í þeim verið snert á fjölmörgum þáttum er tengjast líffræði minksins og áhrifum veiða á stofninn. Bæði hefur verið um að ræða rannsóknir á lifandi dýrum í náttúrunni og dauðum dýrum sem veiðimenn hafa sent NSV til rannsókna. Þau minkaverkefni sem tengjast verndarsvæði Breiðafjarðar eru m.a.:
Sumarið 2007 gerðu NSV og Háskólasetur Snæfellsness rannsókn á komutíma, fjölda og tegundasamsetningu vaðfugla á vestlenskum leirum. Tvö rannsóknasvæðanna voru við Breiðafjörð, annars vegar við Grundarfjörð en hins vegar Berufjörð og nágrenni. Verkefnið var gert með það í huga að auka þekkingu á framangreindum þáttum og til að geta síðar kannað hvort komutíminn hafi breyst vegna breytinga á loftslagi. Unnið er að handriti um niðurstöður rannsóknarinnar.
Náttúrufræðistofnun Íslands hefur umsjón með árlegri talningu fugla á landinu í kringum hver áramót. NSV hefur talið fugla í Kolgrafafirði og Hraunsfirði í ársbyrjun sl. 9 ár. Helstu niðurstöður þeirra talninga má finna á heimasíðu NSV í frétt frá 7. janúar 2009 (www.nsv.is) en niðurstöður allra talninga við Breiðafjörð má finna á heimasíðu Náttúrufræðistofnunar Íslands á slóðinni http://www.ni.is/dyralif/fuglar/vetrarfuglar/talning.
Byrjað var að fylgjast með rituvarpi í Hvítabjarnarey á sunnanverðum Breiðafirði sumarið 2008 í samvinnu NSV, landeiganda og Háskólaseturs Snæfellsness. Verkefninu er ætlað að meta fjölda og varpárangur ritu og fylgjast með breytingum sem kunna að verða á varpinu á næstu árum.
NSV stóð fyrir nokkrum rannsóknum á viðtaka skólps við sunnanverðan Breiðafjörð á árunum 2001-2005. Skýrslurnar má allar finna á heimasíðu NSV:
Þess má að lokum geta að NSV vinnur nú að skýrslu um útbreiðslu ágengra plöntutegunda í landi Stykkishólmsbæjar sumarið 2008. Um er að ræða lúpínu, skógarkerfil og Spánarkerfil. Stefnt er að því að skila skýrslu um rannsóknina ásamt tillögum um mótvægisaðgerðir vorið 2009."
"Náttúrustofa Vestfjarða hefur unnið að nokkrum verkefnum í Breiðafirði, sem snerta verndarsvæði Breiðafjarðar, þ.e. fjöruna, flest í sambandi við vegagerð. Náttúrustofan hefur unnið fleiri verkefni á þessu svæði en ef þau tengjast ekki fjörunni og þannig verndarsvæðinu er þeim sleppt. Hér á eftir fylgir listi yfir skýrslur sem birtar hafa verið í tengslum við þessi verkefni. Verið er að gera þessar skýrslur aðgengilegar á netinu.
Yfirlit yfir skýrslur um verkefni Náttúrustofu Vestfjarða, er snerta verndarsvæði Breiðafjarðar.
Arnlín Óladóttir. 2000. Vestfjarðavegur frrá Múla í Kollafirði að Vattarnesi. Gróðurfar. Náttúrustofa Vestfjarða. Böðvar Þórisson og Eiríkur Beck. 2003. Minnisblað um minkarannsókn í Gilsfirði haust 2003. Náttúrustofa Vestfjarða, NV nr. 10-03. Böðvar Þórisson og Þorleifur Eiríksson. 2005. Fuglalíf í Gufudalssveit og nágrenni. Unnið fyrir Vegagerðina vegna mats á umhverfisáhrifum. Náttúrustofa Vestfjarða, NV nr. 6-05. (pdf 1,0 mb) Böðvar Þórisson og Þorleifur Eiríksson 2008 Rauðbrystingur í Barðastrandarsýslum 2006 og 2007 Náttúrustofa Vestfjarða NV nr. 01-08 Böðvar Þórisson og Þorleifur Eiríksson 2008 Fuglaathuganir frá Eiði í Vattarfirði að Þverá í Kjálkafirði Náttúrustofa Vestfjarða NV nr. 13-08 Hafdís Sturlaugsdóttir. 2008. Gróður í Kerlingarfirði og Kjálkafirði. Náttúrustofa Vestfjarða. NV nr. 03-08. Hafdís Sturlaugsdóttir 2008 Gróður frá Kjálkafjarðarbotni að Þingmannaá í Vatnsfirði Náttúrustofa Vestfjarða. NV nr. 04-08. Kristján Kristjánsson. 2003. Vestfjarðavegur nr. 60, Bjarkalundur - Eyri í Reykhólahreppi í Austur-Barðastrandarsýslu. Tillaga að Matsáætlun. Vegagerðin. (skýrsla pdf). Kristján Kristjánsson, Gísli Eiríksson, Þorleifur Eiríksson, Arnlín Óladóttir og Ragnar Edvardsson. 2001. Framkvæmdin: Vestfjarðavegur (nr. 60): Eyri Vattarnes. Mat á Umhverfisáhrifum. Vegagerðin. Ísafirði maí 2001. 71 bls.(skýrsla) Kristján Kristjánsson, Þorleifur Eiríksson, Böðvar Þórisson, Arnlín Óladóttir og Ragnar Edvardsson. 2005. Vestfjarðavegur 60: Bjarkalundur-Eyri í Reykhólahreppi í Austur-Barðastrandarsýslu. Mat á umhverfisáhrifum. Vegagerðin. (pdf. 29.1 mb) Margrét Hallmundsdóttir og Caroline Paulsen. 2008. Fornleifakönnun vegna vegaframkvæmda í Djúpafirði í Reykhólahreppi Náttúrustofa Vestfjarða. NV nr. 25-08. Margrét Hallmundsdóttir og Caroline Paulsen. 2008. Fornleifakönnun vegna ný- og endurlagningar Vestfjarðavegar nr. 60. Frá Eiði í Vattarfirði að Þverá í Kjálkafirði. Náttúrustofa Vestfjarða. NV nr. 15-08. Margrét Hallmundsdóttir og Caroline Paulsen. 2008. Fornleifakönnun vegna ný og endurlagningar Vestfjarðavegar nr. 60. Frá Þverá í Kjálkafirði að Þingmannaá í Vatnsfirði. Frá Eiði í Vattarfirði að Þverá í Kjálkafirði. Ragnar Edvardsson. 2001. Fornleifakönnun vegna Vestfjarðavegar frá Skálmarfirði til Kollafjarðar. Náttúrustofa Vestfjarða . Ragnar Edvardsson. 2006. Dys í landi Galtarár í Reykhólahreppi. Fornleifarannsókn. Náttúrustofa Vestfjarða, NV nr. 3-06. Sigurður Már Einarsson og Þorleifur Eiríksson. 2000. Rannsóknir á Fjarðarhornsá og Skálmadalsá vegna hugsanlegrar efnistöku. Náttúrustofa Vestfjarða. Sigurður Már Einarsson, Þorleifur Eiríksson og Böðvar Þórisson. 2005. Rannsóknir á Þorskafjarðará, Músará, Djúpadalsá og Gufudalsá vegna framkvæmda á Vestfjarðavegi nr. 60. Unnið fyrir Vegagerðina v/umhverfismats af áhrifum vegaframkvæmda. Náttúrustofa Vestfjarða, NV nr. 5-05. Vegagerðin. 2008. Hörgsnes - Þingmannaá í Vatnsfirði í Vestur barðastrandarsýslu, kynning á framkvæmdinni. Vegagerðin. Vegagerðin. 2009. Vegagerð á milli Eiðis í Vattarfirði og Þverár í Kjálkafirði. Kynning á Framkvæmdinni. Vegagerðin. Þorleifur Eiríksson og Böðvar Þórisson. 2005. Fjörur í Gufudalssveit, Þorskafjörður, Djúpifjörður og Gufufjörður. Unnið fyrir Vegagerðina. Náttúrustofa Vestfjarða, NV nr. 7-05. (pdf 0,7 mb) Þorleifur Eiríksson. 2000. Fuglaathuganir í Kollafirði, Skálmarfirði, Vattarfirði og á Klettshálsi.. : Náttúrustofa Vestfjarða. 22 bls + kort. Þorleifur Eiríksson, Kristjana Einarsdóttir, Cristian Gallo og Böðvar Þórisson. 2008. Leirur í Kjálkafirði og Mjóafirði. NV nr. 22-08."
Svar Einars G Péturssonar, rannsóknaprófessors: "SKRÁ STUNDUM MEÐ UMSÖGNUM UM RITSMÍÐAR EINARS G. PÉTURSSONAR UM BREIÐFIRSK MÁLEFNI 1. »"Múrhúsið?".« Mímir. Blað stúdenta í íslenzkum fræðum. 8:i (1969). 33–34. Grein um steinhús á Skarði á miðöldum. 2. »Emburhöfði – Amburhöfði.« Gripla. V. Rv., Stofnun Árna Magnússonar, 1982. 323–325. (Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi. Rit, 23). Um heiti eyjar á Breiðafirði. 3. »Skarð á Skarðsströnd og kirkjan þar.« Lesbók Morgunblaðsins. 58:43 (1983) 24. des. II. 2–7. Hér er rakin saga kirkjunnar á Skarði. 4. »Sturla Þórðarson 1214–1284. Bókaormur mánaðarins.« Bókaormurinn. 11. Í ágúst (1984). 4–6. Stutt ágrip um Sturlu Þórðarson vegna sýningar í Landsbókasafni í tilefni af því að 700 ár voru liðin frá dauða hans. 5. »Staðarfell og kirkjan þar.« Breiðfirðingur. Tímarit Breiðfirðingafélagsins. 45 (1987). 7–33. 6. »Fróðleiksmolar um Skarðverja.« Breiðfirðingur. Tímarit Breiðfirðingafélagsins. 48 (1990). 28–75. Hér er meira en í tölulið 3 rakin saga ættarinnar á Skarði og birt kvæði um Skarðverja frá 17. öld. 7. »Úr syrpum séra Friðriks Eggerz.« Breiðfirðingur. Tímarit Breiðfirðingafélagsins. 49 (1991). 168–178. 8. »Af gleymdu Dalaskáldi á 19. öld, Bjarna Árnasyni.« Dagamunur gerður Árna Björnssyni sextugum 16. jan. 1992. Rv. 1992. 14–26. 9. Afmælisrit Búnaðarfélags Fellsstrandarhrepps. [s. l.] 1992. 104 s. [Eftir EGP er texti á s. 7–8, 21–54, 63–87 auk ritstjórnar að öðrum hlutum ritsins.] 10. »Jón Lárusson frá Arnarbæli. Staðarfellsbragur.« Breiðfirðingur. Tímarit Breiðfirðingafélagsins. 51 (1993). 144–146. [Prentun með athugasemd.] Hér er birt kvæði um áhrif húsmæðraskólans á Staðarfelli á Fellsstrendinga. 11. »Þorsteinn Þorsteinsson. Nafnagáta eða bæjarvísur um Laxárdal.« Breiðfirðingur. Tímarit Breiðfirðingafélagsins. 51 (1993). 147–155. [Útgáfa eftir mörgum handritum með inngangi og skýringum.] 12. »Flateyjarbók og Þorláksbiblía í Árnastofnun.« Sagnaþing helgað Jónasi Kristjánssyni sjötugum 10. apríl 1994. Rv., Hið íslenska bókmenntafélag, 1994. 143–157. Hér kemur fram hver gaf Brynjólfi biskupi Sveinssyni Flateyjarbók og hvenær. 13. »Af gleymdu Dalaskáldi á 19. öld, Bjarna Árnasyni.« Breiðfirðingur. Tímarit Breiðfirðingafélagsins. 52 (1994). 109–128, sbr. einnig s. 95. 14. »Greftrun Benedikts Gabríels. Ósamhljóða sagnir bornar saman við heimildir.« Breiðfirðingur. Tímarit Breiðfirðingafélagsins. 53 (1995). 86–95. 15. »Helstu lífsatriði Benedikts Gabríels og fáein bréf frá honum.« Breiðfirðingur. Tímarit Breiðfirðingafélagsins. 53 (1995). 96–110. Í tveimur síðasttöldu greinum er rakið hvernær farið var að jarða innan kirkjugarðs menn sem förguðu sér og raktar sagnir þar um. 16. »Góði maðurinn Þórður – dýrlingur í Dölum.« Breiðfirðingur. Tímarit Breiðfirðingafélagsins. 54 (1996). 90–97. Hér er sagt frá manni, sem höggvinn var í Krosshólum, eina Íslendingnum, sem dýrkaður fyrir utan dýrlingana Jón, Þorlák og Guðmund. 17. Eddurit Jóns Guðmundssonar lærða. Samantektir um skilning á Eddu og Að fornu í þeirri gömlu norrænu kölluðust rúnir bæði ristingar og skrifelsi. Þættir úr fræðasögu 17. aldar. I. Inngangur. 512 s. II. Texti. 116 s. Rv., Stofnun Árna Magnússonar, 1998. 2 bindi. (Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi. Rit, 46). [Doktorsritgerð varin við Heimspekideild Háskóla Íslands 13. júní 1998.] Hér er rakin ævisaga Jóns lærða, en hann var m. a. á Skarði á Skarðsströnd og undir Jökli. Hér eru raktar heimildir um brennu bókanna á Helgafelli sennilegast um 1624. 18. Breiðfirðingur. Tímarit Breiðfirðingafélagsins. Efnisskrá 1.–55. árgangs 1942–1997. Bára Stefánsdóttir og Einar G. Pétursson tóku saman. [Reykjavík], Breiðfirðingafélagið, 1998. 89 s. 19. »Athugasemd við kvikmyndina um haförninn.« Morgunblaðið. 3. sept. 1999. 45. Þar eru greindar heimildir um að örn tók barn. 20. »Um þjóðhátíðina 1874 á Staðarfelli og Tindum í Geiradal og fáein kvæði frá henni.« Breiðfirðingur. Tímarit Breiðfirðingafélagsins. 57 (1999). 82–103. 21. »Um bæjarvísur Magnúsar Vigfússonar.« Breiðfirðingur. Tímarit Breiðfirðingafélagsins. 57 (1999). 109–111. 22. »Geitlandsdómur Hæstaréttar.« Morgunblaðið. 11. okt. 2000. 41. 23. »Lögrétt.« Ægisif reist Bergljótu Soffíu Kristjánsdóttur fimmtugri 28. september 2000. 30–32. Hér eru raktar nokkrar gamlar heimildir um réttir, sbr. lið 25 og 26. 24. »Efi um mátt arnarins.« Arnarflug. rejselekture for Örn Ólafsson på hans 60–års fødselsdag 4. april 2001. CPH. 2001. Meira um sama efni og í 19. 25. »Gamlar heimildir um fjallskil í Dölum.« Breiðfirðingur. Tímarit Breiðfirðingafélagsins. 58–59 (2000–2001). 48–83. 26. »“Reglugjörð” fyri Dalasýslu um grenjaleitir, dýraveiðir og geldfjárrekstur á afrétt og dali.« Breiðfirðingur. Tímarit Breiðfirðingafélagsins. 58–59 (2000–2001). 84–96. [Útgáfa.] Hér er niðurstaðan að fjallskil eins og við þekkjum þau frá 20. öld hafi fyrst orðið vel skipulögð á 19. öld. 27. Sumarliði Halldórsson. Úr ferðaskýrslu 1910. Breiðfirðingur. Tímarit Breiðfirðingafélagsins. 58–59 (2000–2001). 121–127. [Útgáfa.] 28. »Um ferðaskýrslu Sumarliða og skóga.« Breiðfirðingur. Tímarit Breiðfirðinga-félagsins. 58–59 (2000–2001). 127–130. Í þessum tveimur greinum er lýst ferðalagi og ástandi skóga við Breiðafjörð fyrir öld. 29. »Um eignir kirkna og kirkjustaða á heiðum og afdölum; einnig um eyjar í eigu kirkna.« 2. íslenska söguþingið 30. maí – 1. júní 2002. Ráðstefnurit II. Ritstjóri: Erla Hulda Halldórsdóttir. Reykjavík, Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands, Sagnfræðingafélag Íslands, Sögufélag, 2002. s. 180–204. Einnig sérprent. Hér eru raktar heimildir um kirkjur áttu alltaf fjalllendi, sem var undir beinum eignarrétti. 30. »Söguleg rök Hæstaréttar og óbyggðanefndar.« Morgunblaðið. 23. nóv. 2002. 54. 31. Dalasýsla. Sýslu og sóknalýsingar Hins íslenska bókmenntafélags 1839-1855. Einar G. Pétursson sá um útgáfuna. Reykjavík, Sögufélag Örnefnastofnun Íslands, 2003. xxii, 208 s. Ritdómur: Sigurjón Björnsson. Lýsing Dalasýslu. Morgunblaðið. 23. febrúar 2004. 16. 32. »Séra Friðrik Eggerz og þjóðsögurnar.« Breiðfirðingur. Tímarit Breiðfirðinga-félagsins. 60 (2002). s. 52–66. 33. »Um mónafar og jarðnafar.« Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 2000–2001. s. 189–204. Greint frá verkfæri úr Ólafsdal til að reyna að leita að mó, en mótekja jókst mjög á 19. og 20. öld. 34. »Um Jöklu.« Ólafur Elímundarson. Undir bláum sólarsali. Fyrra bindi. Einar G. Pétursson ritaði inngang. Reykjavík, Háskólaútgáfan, 2003. s. 13–16. (Jökla hin nýja II. Úr sögu Breiðuvíkuhrepps og Neshrepps undan Ennis.) 35. »Frásagnir um skrímsli í Haukadalsvatni.« Breiðfirðingur. Tímarit Breiðfirðingafélagsins. 61–62 (2003–2004). [2005] s. 179–192. Hér eru raktar heimildir um skrímsli í Haukadalsvatni. 36. »Athugasemd við Dalaferð sumarið 2005.« Skjöldur. 1:15 = 55 (2006). 22–23. Hér er frásögn af því er farið var að leita vopna Geirmundar heljarskinns á 6. áratug síðustu aldar. 37. »Efi um mátt arnarins.« Bændablaðið. 2. tbl. 2007. 30. jan. 23. 38. »Um vinnubrögð í þjóðlendumálum.« Morgunblaðið. 13. maí 2007. 47. [Greinin hefur einnig birst á heimasíðu Landssamtaka landeiganda. landeigendur.is] 39. »Á hverju byggjast úrskurðir í þjóðlendumálum?« Bændablaðið. 11. tbl. 2007. 12. júní. 7. [Úrdráttur úr fyrirlestrinum: »Eignir kirkna á fjalllendi og málskilningur og heimildanotkun í þjóðlendumálum.«] 40. »Athugasemdir um Kjalleklinga sögu.« Encyclopædica Brittanica; | eller, et antal | FREMSTILLINGER | om | de ſkiønne og nyttige | VIDENSKAPER, | i hvilke diskurser | diverſe Phænomeners | Beskrivelser & Forklaringer gives | tillege med| adſkillige beſynderlige og ſærdeeles Observationer, &a | i Øst og Vest | ... | Udgivne af en Kreds af danneqvinder paa Amager. | ... | VOL. I. | hafniæ. | ... | MMVII. s. 53–56. Hér eru athugasemdir um útdrátt úr sögunni í Landnámu og reynt að skýra sum orð sem sérnöfn. 41. »Akrabók. Handrit að Eddum með hendi Árna Böðvarssonar á Ökrum og hugleiðingar um rannsóknir á Eddunum.« Gripla XVIII (2007). s. 133–152. Greint frá handriti sem kom frá Ísrael, en var eitt sinn í Dölum. 42.»Hugleiðingar um þjóðlendumál.« Skessuhorn. 1.–2. tbl. 11. árg. (2008). s. 25. 43. »Sábínuvík ― Nábeinavík.« Rósaleppar þæfðir Rósu Þorsteinsdóttur fimmtugri 12. ágúst 2008. s. 21–23. Skýrt örnefni í landi Staðarfells á Fellsströnd. "
|
_________________________________________________________________________________________________________________________
|
|