Breiðafjarðarnefnd hélt í vettvangsferð frá Stykkishólmshöfn kl. 09.20. Siglt var í átt að Helgafellseyjum og gengið í land í Skákarey. Þar tóku á móti hópnum hjónin, Einar Karlsson, Pálína Þorvarðardóttir og Olga dóttir þeirra. Einar sagði frá staðháttum og umhverfi Skákareyjar. Að því loknu buðu gestgjafarnir upp á veitingar.
Frá Skákarey var lónað yfir Breiðasundið og Helgafellseyjar (Seley og Fagurey) skoðaðar frá sjó. Næst var gengið í land við Brandstanga í Hrappsey þar sem Bogi Jónsson tók á móti hópnum. Bogi lýsti staðháttum og bauð gestum upp á veitingar
Frá Hrappsey var lónað yfir Selasund og áfram með löndum í Purkey. Eftir að hafa skoðað stuðlabergið í Purkey var haldið áfram upp í Dímonasund og siglt inn með Klakkeyjum. Hluti af hópnum fór í land í Klakkeyjum og gekk upp á topp annars Klakksins.
Frá Klakkeyjum var siglt norður að Fremri Langey og gengið þar í land. Þar tóku á móti hópnum hjónin Eggert Kjartansson og Hólmfríður Gísladóttir. Vel var tekið á móti gestum og Eggert sagði frá staðháttum.
Frá Fremri Langey var siglt í blíðskaparveðri framhjá Arney og Bíldsey og fyrir Arneyjarsund og í átt að Stykkishólmi.
Í ferðinni naut hópurinn leiðsagnar Péturs Ágústssonar frá Sæferðum. Skipstjóri í ferðinni var Tryggvi Gunnarsson og farkosturinn Siggi Þórðar GK 197.
Gestir Breiðafjarðarnefndar í vettvangsferðinni voru Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra, Torfi Hjartarson, Margrét Hallmundsdóttir fornleifafræðingur o.fl.
Hér fyrir neðan má sjá nokkrar af þeim myndum sem teknar voru í ferðinni.
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
|||
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
|||
![]() |
![]() |
![]() |
|
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
Smellið á myndirnar til að skoða þær betur