Breiðafjarðarnefnd hefur samið við Náttúrustofu Suðvesturlands um að rannsaka útbreiðslu framandi tegunda í völdum höfnum við Breiðafjörð.

Náttúrustofa Suðvesturlands býr yfir sérþekkingu á sviði framandi tegunda í hafi og hefur undanfarin ár vaktað eina höfn við Breiðafjörð, Stykkishólmshöfn[1], sem hluta af stærra verkefni. Skipuleg rannsókn á framandi tegundum í sjó víðar við Breiðafjörð hefur hins vegar ekki farið fram. Rannsóknin, sem Breiðafjarðarnefnd hefur haft frumkvæði að, verður framkvæmd í nokkrum höfnum við Breiðafjörð.

Tegundir eru taldar framandi ef þær hafa verið fluttar viljandi eða óviljandi til landsins af mannavöldum. Aðalflutningsleiðir framandi sjávarlífvera eru taldar vera með skipum, t.d. á skipsskrokkum eða í kjölfestuvatni, með lifandi eldisdýrum, þá sérstaklega skeldýrum sem flutt eru milli svæða, og með sendingum milli heimsálfa á efnivið í skrautfiskaræktun.

Lítill hluti framandi tegunda sem nær fótfestu í nýjum heimkynnum getur orðið ágengur. Ágengar tegundir eru kallaðar þær tegundir sem ógna líffræðilegri fjölbreytni og valda tjóni á umhverfi, efnahag eða heilsu manna.

Samvinnuverkefni Breiðafjarðarnefndar og Náttúrustofu Suðvesturlands hófst í lok ágúst 2023 og munu niðurstöður rannsóknarinnar liggja fyrir í ársbyrjun 2025.

[1] https://www.natturustofa.is/framandi_sjavarlifverur.html