Breiðafjarðarnefnd hefur nýlega samið við tvo aðila um framkvæmd rannsókna á verndarsvæði Breiðafjarðar.
- Náttúrufræðistofnun Íslands
Breiðafjarðarnefnd hefur samið við Náttúrufræðistofnun Íslands um framhald örnefnaverkefnis sem starfsmaður Náttúrufræðistofnunar hefur unnið með fjárhagslegum stuðningi Breiðafjarðarnefndar síðustu ár. Örnefnaverkefnið felst í skráningu örnefna eyja, skerja og flæðiskerja á Breiðafirði og eru upplýsingar sendar til Landmælinga Íslands og birtar opinberlega í vefsjá stofnunarinnar. Breiðafjarðarnefnd vill með áframhaldandi stuðningi við verkefnið stuðla að skráningu þekkingar á sviði menningar og tungumáls, sem er að mörgu leyti grunnur að mannlegum skilningi á búsetu á Breiðafirði, bæði í fortíð og nútíð. Samningur Breiðafjarðarnefndar og Náttúrufræðistofnunar Íslands nær yfir rannsóknir sem lokið verður við á þessu ári.
- Náttúrustofa Vestfjarða
Breiðafjarðarnefnd hefur samið við Náttúrustofu Vestfjarða um framkvæmd gróðurrannsóknar í Akureyjum og Hrúteyjum við norðaustanverðan Breiðafjörð. Rannsóknin fer fram sumarið 2023 og verða niðurstöður gerðar aðgengilegar fyrir almenning. Gróðurrannsóknin er sambærileg gróðurrannsókn sem gerð var árið 2018 í nokkrum eyjum við sunnanverðan Breiðafjörð og Breiðafjarðarnefnd styrkti. Rannsóknin frá 2018 er aðgengileg hér á vefsíðu Breiðafjarðarnefndar.