Hafin er vinna að gerð nýrrar verndaráætlunar fyrir verndarsvæði Breiðafjarðar. Breiðafjarðarnefnd hefur ráðið Náttúrustofu Vesturlands og Náttúrustofu Vestfjarða til að vinna drög að áætluninni og stýrir Sigurlaug Sigurðardóttir (sigurlaug@nave.is) verkinu.
Markmið verndaráætlunarinnar er að tryggja vernd náttúru- og menningarminja svæðisins. Í þessu felst m.a. að náttúra verndarsvæðisins fái að þróast eftir eigin lögmálum eins og kostur er um leið og almenningi og landeigendum er, eftir ákveðnum reglum, gert kleift að njóta þess sem svæðið hefur upp á að bjóða. Áætlunin er stefnumörkun sem lýsir stuttlega verndargildi svæðisins í heild og einstökum hlutum þess og markar stefnu um útfærslu stjórnunar og umsýslu vegna m.a. verndar, skipulags og framkvæmda á svæðinu og sýnir leiðir til að ná þeim markmiðum. Verndaráætlunin er jafnframt uppspretta hugmynda að rannsóknarverkefnum á sviði náttúruvísinda og menningar.
Náttúrustofurnar tvær munu gera drög að nýrri verndaráætlun sem Breiðafjarðarnefnd mun svo vinna áfram og setja í samráðsferli. Við vinnuna verður m.a. haft að leiðarljósi að gera verndaráætlunina aðgengilegri, styttri og einfaldari en fyrri áætlanir en draga um leið fram sérstöðu svæðisins. Nýja verndaráætlunin leysir af hólmi verndaráætlun fyrir Breiðafjörð 2014-2019 sem var gefin út 2014.