Á árinu 2022 verður áfram unnið að greiningu mismunandi kosta varðandi mögulega framtíð verndarsvæðis Breiðafjarðar; vinna sem Breiðafjarðarnefnd setti af stað á kjörtímabili síðustu nefndar og skilaði skýrslu til ráðherra í ársbyrjun 2021.  

Á síðustu mánuðum hefur umhverfis- orku og loftslagsráðuneytið gengið frá samningum við Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi, Fjórðungssamband Vestfirðinga og Náttúrustofu Vesturlands um forsendugreiningu fyrir verndun Breiðafjarðar og tengsl við byggðaþróun. Jakob Stakowski (Jakob@nsv.is) var ráðinn til eins árs í 75% starf hjá Náttúrustofunni til að vinna að verkefninu en þar fyrir utan vinnur hann sem starfsmaður Breiðafjarðarnefndar. Stýrihópur ráðuneyta og samtaka sveitarfélaga sér um forsendugreiningu fyrir framtíðarfyrirkomulag verndunar Breiðafjarðar og tengsl við byggðaþróun og vinnur Jakob með hópnum. Vinnan er á byrjunarstigi og er gert ráð fyrir að stýrihópurinn komi saman á næstunni. Stýrihópurinn mun leggja fram sínar tillögur um framtíð verndarsvæðis Breiðafjarðar til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra í árslok 2022.