
Síðasti fundur ársins 2008
5. desember sl. hélt Breiðafjarðarnefnd síðasta fund ársins 2008. Friðjóni Þórðarsyni, fyrrverandi formanni nefndarinnar (1996-2008), var sérstaklega boðið að koma á fundinn og voru honum þökkuð störf í þágu nefndarinnar. Öðrum fyrrverandi nefndarmönnum var einnig boðið á fundinn. Nefndarmönnum og gestum gafst tækifæri á að skoða sýninguna í Leifsbúð.
Ný nefnd skipuð
Þann 17. júlí sl. var skipað í Breiðafjarðarnefnd til næstu fjögurra ára. Í nefndinni sitja: Formaður skipaður án tilnefningar Kolbrún Reynisdóttir, formaður Guðríður Þorvarðardóttir, varaformaður Samkvæmt tilnefningu Fornleifaverndar ríkisins Magnús A. Sigurðsson Agnes Stefánsdóttir varamaður Samkvæmt sameiginlegri tilnefningu Náttúrufræðistofnunar Íslands, Náttúrustofu Vesturlands og Náttúrustofu Vestfjarða Þorleifur Eiríksson Róbert Arnar Stefánsson varamaður Samkvæmt tilnefningu Héraðsnefndar Snæfellinga Ásgeir Gunnar Jónsson [...]
