
Stöðuskýrsla um náttúrufarsrannsóknir
Breiðafjarðarnefnd hefur látið vinna Stöðuskýrslu um náttúrufarsrannsóknir á Breiðafirði. Skýrslan er samin af Gunnari Þór Hallgrímssyni og Ævari Petersen skv. samningi við Náttúrufræðistofnun Íslands. Skýrsluna er hægt að sækja hér.
Kynningarbæklingur gefinn út
Nú í sumar stóð Breiðafjarðarnefnd að útgáfu á kynningarbæklingi um Breiðafjörð sem ber heitið " Breiðafjörður - Náttúra og saga" . Bæklingurinn var sendur inn á hvert heimili sveitarfélaganna átta við Breiðafjörð og til helstu aðila í ferðaþjónustu á svæðinu. Hægt er að skoða bæklinginn og panta hér . Einnig er hægt að skoða kortið úr bæklingnum undir [...]
