
Ný verndaráætlun
Hafin er vinna að gerð nýrrar verndaráætlunar fyrir verndarsvæði Breiðafjarðar. Breiðafjarðarnefnd hefur ráðið Náttúrustofu Vesturlands og Náttúrustofu Vestfjarða til að vinna drög að áætluninni og stýrir Sigurlaug Sigurðardóttir (sigurlaug@nave.is) verkinu. Markmið verndaráætlunarinnar er að tryggja vernd náttúru- og menningarminja svæðisins. Í þessu felst m.a. að náttúra verndarsvæðisins fái að þróast eftir eigin lögmálum eins og kostur er [...]
Áfram unnið að stefnumörkun varðandi framtíð Breiðafjarðar
Á árinu 2022 verður áfram unnið að greiningu mismunandi kosta varðandi mögulega framtíð verndarsvæðis Breiðafjarðar; vinna sem Breiðafjarðarnefnd setti af stað á kjörtímabili síðustu nefndar og skilaði skýrslu til ráðherra í ársbyrjun 2021. Á síðustu mánuðum hefur umhverfis- orku og loftslagsráðuneytið gengið frá samningum við Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi, Fjórðungssamband Vestfirðinga og Náttúrustofu Vesturlands um forsendugreiningu [...]
