Breiðafjarðarnefnd hefur nýlega birt rannsókn á framandi tegundum í völdum höfnum Breiðafjarðar.
Framandi tegundum við Ísland hefur fjölgað mikið á sl. áratugum og hlutfallslegt vægi þeirra er vaxandi. Þrátt fyrir ákveðnar takmarkanir í sögulegum gögnum er ljóst að innlendar tegundir standa frammi fyrir vaxandi ógn vegna samkeppni við framandi tegundir. Breytingar á umhverfisaðstæðum, s.s. hita, eru mikilvægar til að ákvarða hvaða svæði geta verið viðkvæmari fyrir landnámi framandi tegunda.
Í samræmi við spár mun hitastig fara hækkandi á mörgum svæðum vegna loftslagsbreytinga, sem mun skapa hagstæðari aðstæður fyrir landnám og útbreiðslu fjölda framandi tegunda. Þetta aukna landnám getur haft alvarlegar afleiðingar, bæði fyrir líffræðilegan fjölbreytileika og nytjastofna og leitt til verulegra efnahagslegra áhrifa.
Niðurstöður þessarar frumrannsóknar á framandi tegundum í höfnum í Breiðafirði er mikilvægt upphafsskref á þekkingu svæðisins og varpar ljósi á núverandi stöðu á svæðinu. Í rannsókninni fundust alls fjórar framandi tegundir og fimmtán dultegundir.
Hægt er að ná skýrsluna undir Útgáfu -> Samstarfsverkefni eða hér Breidafjardarnefnd – Framandi tegundir (2025)