Ný Breiðafjarðarnefnd var skipuð 27. október 2025. Nefndin er skipuð til fjögurra ára í senn. Sveitarfélögin sem liggja að Breiðafirði tilnefna fjóra fulltrúa, Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur á Vesturlandi og Vestfjörðum tilnefna einn sameiginlega og Minjastofnun tilnefnir einn fulltrúa. Umhverfis- og auðlindaráðherra skipar einn fulltrúa án tilnefningar, sem jafnframt gegnir formennsku. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti.
Upplýsingar um núverandi Breiðafjarðarnefnd má finna á heimasíðu nefndarinnar undir flipanum Breiðafjarðarnefnd → Nefndin.
Nokkrar breytingar hafa orðið á samsetningu Breiðafjarðarnefndar og þakkar nefndin öllum þeim sem komu að störfum hennar á árunum 2022–2025. Nefndin hlakkar til áframhaldandi vinnu að málefnum Breiðafjarðar á komandi árum.